Tveir flyglar gefa tónlistarnæringu í Garðabæ

Miðvikudaginn 6. mars klukkan 12:15 verður boðið upp á tónlistarnæringu í sal Tónlistarskóla Garðabæjar með flygladúóinu Sóleyju sem leikur íslensk verk fyrir tvo flygla. Meðal verka sem flutt verða er svíta sem samin var sérstaklega fyrir flygladúóið og er dúóið spennt að frumflytja hana á tónleikunum. Þá er á dagskrá verk byggt á íslenskum þjóðlögum sem eru útsett fyrir tvö píanó.

Flygladúóið Sóley er skipað þeim Laufeyju S. Haraldsdóttur og Sólborgu Valdimarsdóttur en þær stofnuðu dúóið árið 2019. Dúóið hefur haldið bæði tónleika hérlendis og erlendis og meðal annars frumflutt ný íslensk verk fyrir tvo flygla. Markmið dúósins hefur verið að vekja athygli á verkum fyrir tvo flygla og hefur lagt áherslu á nýsköpun og íslenska tónlist fyrir hljóðfærasamsetninguna. Það hefur dúóið einnig gert í gegnum vinnustofur fyrir unga píanónemendur.

Tónleikarnir eru ókeypis og öll velkomin. 


 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins