Ekki forsendur fyrir því að velferðarsvið starfi áfram í Fannborg 6

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því eru ekki forsendur fyrir því að velferðarsvið starfi þar áfram.

Starfsfólk færist í heimavinnu eins og sakir standa en unnið er að lausn húsnæðismála til lengri og skemmri tíma. Símsvörun og móttaka erinda velferðarsviðs færðist að Digranesvegi 1 frá mánudaginn 28.ágúst sl.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar