Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2017) og 8. bekk (f. 2010) fer fram dagana 1. – 10. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar.
Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 10. mars nk.
Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 10. mars nk. Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriða –
holtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á þjónustugátt Garðabæjar. Sama gildir fyrir sérstakt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum. Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.
Upplýsingar um kynningar hjá grunnskólum í Garðabæ í mars fyrir forráðamenn nýnema.
Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:
- Álftanesskóli , s. 540 4700, alftanesskoli.is
- Flataskóli , s. 513 3500, flataskoli.is
- Garðaskóli , s. 590 2500, gardaskoli.is
- Hofsstaðaskóli , s. 590 8100, hofsstadaskoli.is
- Sjálandsskóli , s. 590 3100, sjalandsskoli.is
- Urriðaholtsskóli , s. 591 9500, urridaholtsskoli.is
- Barnaskóli Hjallastefnunnar , s. 555 7710, bskgbr.hjalli.is
- Alþjóðaskólinn sími 594 3100, internationalschool.is
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2023-2024 er til 1. apríl og skulu umsóknir
berast skóladeild Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár.
Mynd: Sjálandsskóli