Ritsmiðja fyrir skúffuskáld

Lumar þú á sögum, minningum eða ljóðum sem þig langar að gera eitthvað meira með en skortir hugrekki til að draga fram í dagsljósið? Þá er tækifærið núna á Bókasafni Kópavogs.

Námskeið í skapandi skrifum fyrir skúffuskáld verður haldið í Huldustofu á aðalsafni í nóvember. Ritsmiðjunni er ætlað að hvetja einstaklinga til að skrifa og yrkja sem aldrei fyrr. Gerðar verða tilraunir með ritun smáverka af ýmsu tagi eins og örsögur, smásögur og prósa. Aðaláhersla verður lögð á skrif og bæði skálduð og sannsöguleg verk verða skoðuð.

Ýmis tæki og tól verða kynnt til sögunnar. Einnig verður ritstjórnarferli kynnt og þátttakendum gefinn kostur á að skila stuttum texta og fá hann til baka yfirfarinn af ritstjóra. Nemendur eiga síðan samtal um sögurnar og fá endurgjöf frá samnemendum og kennurum.

Ritsmiðjan er fjögur skipti, tvær klukkustundir í senn frá 16:00 til 18:00, og verður henni skipt upp á eftirfarandi hátt:

Fyrsti tími – 2. nóvember: „Margra mílna ferð hefst á einu skrefi.“ Þátttakendur kynna sig. Stutt skilgreining á örsögum, smásögum og prósum. Hlutverk ritstjóra.

Annar tími – 9. nóvember: „Örsagan og lýsingar. Kann ég að taka gagnrýni?“ Persónulýsingar, umhverfislýsing, að lýsa tilfinningum. Orðaforði, málfar og stíll. Fyrir hvern er skrifað? Fyrstu skil höfunda til yfirlesturs.

Þriðji tími – 16. nóvember: Skoðum innsenda texta og breytingar sem hafa orðið á þeim. Myndlíkingar og hugtakslíkingar. Ég – þú – hann/hún/hán frásögn. Upplestur þátttakenda.

Fjórði tími – 23. nóvember: Alvitur sögumaður, sjónarhornið víxlast. Hvað þarf að varast? Yfirferð innsendra texta. Hvað hafa þátttakendur lært? Hvað hefur breyst? Lokaskil og samantekt.

Leiðbeinendur eru:
Ásdís Káradóttir, MA í ritlist, BA í bókmenntafræði
Sæunn Þórisdóttir, MA í hagnýtri ritstjórn og útgáfu, BA í bókmenntafræði með ritlist sem aukagrein

Námskeiðið er ætlað fullorðnum og hámarksfjöldi er 20 manns. Þátttaka er ókeypis. Skráning fer fram á [email protected]

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar