Kópavogur á farsældarþingi

Börn og ungmenni úr Kópavogi og starfsfólk bæjarins tóku þátt í farsældarþingi sem fram fór síðastliðinn mánudag. Börnin eru fulltrúar barnaþings og ungmennaráðs Kópavogs, en starfsfólk kemur af mennta- og velferðarsviði bæjarins.

Á farsældarþingi eiga fagfólk, þjónustuveitendur, stjórnvöld, börn og aðstandendur víðtækt samtal um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar