Dr. Gunni þekkir vel til pönksins í Kópavogi

Í dag, miðvikudaginn 7. september kl. 12.15 leiðir Dr. Gunni hressa göngu um söguslóðir pönksins í Menning á miðvikudögum á Bókasafni Kópavogs. Í kringum árið 1980 varð Kópavogur vagga pönksins og Félagsheimilið í Kópavogi helsti vettvangur þess. Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, tók virkan þátt í tónlistarsenunni í Kópavogi og þekkir því vel til. Gangan hefst á aðalsafni og eru öll hjartanlega velkomin. Aðgangur ókeypis.

Dr. Gunni (Gunnar Lárus Hjálmarsson) er fæddur í Kópavogi árið 1965 og byrjaði snemma að gutla í tónlist eftir að hann gerðist Bítla-aðdáandi um miðjan 8. áratuginn. Ákveðin kúvending varð þegar hann heyrði í Fræbbblunum í Kópavogsbíói 1979. Hann kom fyrst fram með hljómsveit (Dordinglar) á sama stað 1980. Síðan þá hefur hann komið víða við, spilað, sungið, samið og fjallað um tónlist. Hann fagnar í ár tvítugsafmæli hljómsveitarinnar Dr. Gunni, sem hefur gert þrjár plötur, þá síðustu, Nei, ókei, í fyrra.

Menning á miðvikudögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar