Heilsugæslan Garðabæ lokuð vegna bruna á Garðatorgi

Heilsugæslan Garðabæ verður lokuð í dag, fimmtudaginn 7. mars, vegna eldsvoða í aðliggjandi húsnæði á Garðatorgi. Talsverður reykur barst inn í húsnæði stöðvarinnar og er nú unnið að því að þrífa. Vonir standa til þess að stöðin geti opnað á morgun en ekki er víst að það náist.

Fólki með bráð erindi er bent á að hringja í síma 1700 eða hafa samband í gegnum netspjallið á Heilsuveru. Þar fær það ráðgjöf og verður beint á nágrannastöðvar í Hafnarfirði og Kópavogi.

Starfsfólk Heilsugæslunnar Garðabæ er komið með aðstöðu á öðrum starfsstöðvum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og mun hafa samband við alla sem eiga bókaða tíma.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar