Garðbæingurinn Jón Guðni Ómarsson ráðinn bankastjóri Íslandsbanka

Birna Einarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem bankastjóri Íslandsbanka og hafa stjórn bankans og Birna gert samkomulag um starfslok hennar, en þetta kem­ur fram í tilkynningu frá bank­an­um sem var send út klukkan 03:48 í nótt.

Þar kemur einnig fram að stjórn bankans hafi ráðið Garðbæinginn Jón Guðna Ómarsson í starf bankastjóra, en Jón Guðni ólst upp í Garðabæ og lék m.a. knattspyrnu með yngri flokkum Stjörnunnar og meistarafokki félagsins.

Í tilkynningunni segir að Jón Guðni hafi starfað hjá Íslandsbanka og forverum hans frá árinu 2000 og gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármála bankans frá 2011. Jón Guðni mun áfram gegna stöðu framkvæmdastjóra fjármála Íslandsbanka uns ráðið hefur verið í þá stöðu.

Finnur Árnason, stjórnarformaður Íslandsbanka:
Fyrir hönd stjórnar vil ég þakka Birnu Einarsdóttur fyrir mörg farsæl ár í starfi hjá bankanum. Birna hefur byggt upp sterkan banka og öfluga liðsheild sem við munum áfram búa að. Hún hefur að sönnu verið hreyfiafl og haldið gildum um jafnrétti, fjölbreytileika og sjálfbærni á lofti innan sem utan fyrirtækisins. Við óskum Birnu velfarnaðar í framtíðinni.

Stjórn bankans þekkir vel til starfa Jóns Guðna sem hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum á fjármálamarkaði og mun leiða bankann á þeirri vegferð sem framundan er.“

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar