Garðabær er sjötta fjölmennasta sveitarfélag landsins

Íbúum í Garðabæ fjölgaði um 367 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. ágúst 2023 og eru þeir nú orðnir 19.234. Garðbær er sjötta fjölmennasta sveitarfélag landsins og er farið að narta í hælana á Akureyri þar sem íbúar eru 20.147 talsins.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.639 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. ágúst 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 469 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 249 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.174 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 379 íbúa.

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda á höfðuborgarsvæðinu þá fjölgar Garðbæingum mest á þessum tímabili, 1. desember 2022 til 1. ágúst 2023, ásamt Reykvíkingum og Hafnfirðingum eða um 1,9%. Mosfellingum fjölgar um 1,7%, Kópavogsbúum um 1.2% og Seltirningum um 0,7%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda yfir allt landið þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlut-fallslega mest frá 1. desember 2022 um 14,3% en íbúum þar fjölgaði um 16 íbúa.

Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 12,1% en þar fjölgaði íbúum um 7 einstaklinga frá 1. desember 2022. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 9 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 55 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,6% sem er fjölgun um 1.417 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 8.109 frá 1. desember 2022 til. 1. ágúst 2023 sem er um 2,1%.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar