Útilaugin í Sundlaug Kópavogs verður lokuð næstu vikurnar

Á laugardaginn, 20. maí lokar 50 metra útilaug í Sundlaug Kópavogs vegna viðhalds og viðgerða og verður lokuð þrjár til fimm vikur.

Vaðlaug sunnan laugar verður lokuð á sama tíma.

Rennibrautir loka einnig 20.maí en reynt verður að opna þær eftir eina til tvær vikur frá upphafi framkvæmda.

Meðan framkvæmdum stendur verður ekki skólasund í innilauginni og er gestum bent á hana á meðan útilaug er lokuð.

Síðar í sumar verða heitir pottar lokaðir og vegna viðgerða, þó aldrei allir í einu.

Þá þarf að skipta um hellur á hluta laugasvæðis.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins