Matreiðslukeppni flokkanna fór fram nú í kosningabaráttunni, þar tóku fulltrúar flestra flokka þátt.
Það er greinilegt að Garðbæingurinn Bjarna Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins er margt til lista lagt því hann fékk gullverðlaun fyrir sína eldamennsku, en dómnefndin dæmdi bragð, útlit, vinnubrögð og hreinlæti. Keppendur höfðu 70 mínútur til að elda annað hvort íslenskt lambakjöt eða lúðu sem í báðum tilfellum var borið fram með kartöflum og grænmeti en þeir keppendur sem elduðu lamb urðu að gera Béarnaise-sósu og þeir sem elduðu fisk urðu að bera fram með honum Hollandaise-sósu. Bjarni ákvað að skella sér á íslenska lambið og Béarnaise-sósu og fékk mikið hrós frá dómurum. Þá stóð Garðbæingurinn og Framsóknarmaðurinn Einar Bárðarson sig einnig vel og nældi í silfur.
Keppnin fór fram í æfingaeldhúsi Kokkalandsliðsins sem staðsett er í húsi fagfélaganna við Stórhöfða í Reykjavík. Kokkalandsliðið hefur á undanförnum árum náð stórkostlegum árangri, nú síðast með því að enda í þriðja sæti á Ólympíuleikunum sem fram fóru í febrúar síðastliðnum. Liðið átti bestu þriggja rétta máltíðina á leikunum.
Íslenskir veitingastaðir koma ferðamönnum sífellt á óvart með framsækni og stöðugleika. Kokkalandsliðið hefur allt frá því að það hóf að keppa erlendis 1978 verið stór partur af framþróun íslenskrar veitingaflóru, sem hefur styrkt stöðu íslenskrar ferðaþjónustu með gæðum sínum.
,,Nutu“ þess að smakka rétti frambjóðenda
Dómarar keppninnar, þau Snædís Xyza Mae Ocampo þjálfari Kokkalandsliðsins, Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði landsliðsins og Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Bocuse d’Or keppandi Íslands 2025, ,,nutu“ þess að smakka hvern réttinn á fætur öðrum hjá frambjóðendum flokkanna.
Í keppnum landsliða í matreiðslu geta mörg lið fengið hverja einkunn en gefið er gull, silfur, brons og viðurkenning. Eins og áður sagði þá dæmi dómnefndin bragð, útlit, vinnubrögð og hreinlæti. Keppendur höfðu 70 mínútur til að elda annað hvort íslenskt lambakjöt eða lúðu sem í báðum tilfellum var borið fram með kartöflum og grænmeti en þeir keppendur sem elduðu lamb urðu að gera Béarnaise-sósu og þeir sem elduðu fisk urðu að bera fram með honum Hollandaise-sósu.
Þátttakendur í keppni flokkanna komu svo sannarlega á óvart í eldhúsinu en flestir þeirra sýndu frábær tilþrif og afgreiddu mat sinn á tíma.
Niðurstaða keppninnar var þessi:
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, gull.
Ragnar Þór Ingólfsson, Flokki fólksins, gull.
Finnur Ricart Andrason, Vinstri grænum, gull.
Dagbjört Hákonardóttir, Samfylkingu, gull.
Einar Bárðarson, Framsóknarflokki, silfur.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Pírötum, silfur.
Pawel Bartoszek, Viðreisn, brons.
Jakob Frímann Magnússon, Miðflokki, viðurkenning.
Myn/aðsend: Bjarni Benediktsson í essinu sínu.