Virðingarríkt uppeldi (RIE)

Fimmtudaginn 16. nóvember kl. 10:00-11:00 mun Guðrún Birna le Sage markþjálfi fjallar um meðvitað og virðingarríkt uppeldi (RIE), uppruna þess og grunnhugmyndafræði þessarar vinsælu uppeldisstefnu og þær viðhorfsbreytingar sem hún kallar á. Viðburðurinn er á Bókasafni Kópavogs.

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu. Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs. Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar