Vinavoðir vaxa og vaxa

Félagsskapurinn Vinavoðir í Lindakirkju hóf göngu sína vorið 2014 og er alltaf er að vaxa. 

Vinavoðir er prjónahópur, öllum opin, og hittast í Lindakirkju á mánudögum kl. 11:00-13:00 til að prjóna og eða hekla saman, spjalla og svo er alltaf heitt á könnunni. Myndast hefur gott samfélag sem auðvelt er að koma inn í. Fyrir utan vikulega samverustundir er alltaf farið í dagsferð á vorin eitthvert í nágrenni við höfuðborgina, hádegisverður snæddur og eitthvað áhugavert skoðað. 

Vinavoðir prjóna bæði sjöl og ungbarnasmekki sem öll skírnarbörn í Lindakirkju fá afhent að gjöf. 

Þú ert velkomin/nn í hóp Vinavoða en starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu. HugsjónVinavoða kviknaði útfrá Prayer Shawl Ministries í Bandaríkjunum þar sem fjöldi handavinnuhópa hefur verið stofnaður til að prjóna og hekla sérstök bænasjöl.

Bænasjölin hafa verið gefin áfram sem vinarvottur og hlýjar blessunaróskir til sjúklinga og annarra sem eru staddir á krossgötum í lífi sínu.
Hugsjónin hefur breiðst út víða um heim og orðið mörgum til blessunar, bæði þeim sem gefa og þiggja.

Mörg dæmi eru til um þakklátt fólk sem hefur þegið sjal og síðar sjálft prjónað sjöl fyrir aðra sem þurfa þeirra með. Þannig berst blessunin áfram lykkju fyrir lykkju, mann fram af manni.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins