VÍDD – SPACE

Kristín Tryggvadóttir opnar einkasýningu sína laugardaginn 2. október kl. 14 – 17 í Gallerí Göngum, tengibyggingu við Háteigskirkju.

Kristín Tryggvadóttir

Sýningin stendur yfir frá 2. október til 2. nóvember 2021. Opið er virka daga frá kl 10 – 16, helgaropnanir nánar auglýstar á facebook síðu Kristínar eða eftir samkomulagi.

Kristín er Kópavogsbúi og rekur vinnustofuna ART 11 í félagi við fleiri listamenn í Auðbrekku 10 Kópavogi. Hún er kennari frá KHÍ, stundaði nám við Handíða og Myndlistaskólann, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Kópavogs ásamt námsferðum til Danmerkur og Ítalíu.

Kristín, sem er félagi í SÍM og Íslenskri grafík, hefur haldið fjölda einka- og samsýningar m.a. í Danmörku, Ítalíu, New York, Svíþjóð, Bretlandi og Finnlandi. Verk Kristínar á sýningunni spegla áhuga hennar á vídd, fjölbreyttan skilning tungu og tákna með tengingu við hina óendanlegu veröld fjarlægðar og nálægðar.

Veröld nær og fjær er túlkuð allt frá hinu huglæga og ósjáanlega til okkar fótspora.
Jörð, himingeimur, táknmyndir, jafnvægi og fegurð.


Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins