Fimmtudaginn 28. október sl. var 50 birkitrjám plantað í nýjum Vatnsdropaskógi á Vatnsendahæð af fulltrúum Vatnsdropaverkefnisins. Vatnsdropinn er þriggja ára alþjóðlegt samstarfsverkefni MEKÓ (Menning í Kópavogi), Múmínsafnsins í Tampere, H.C. Andersen safnsins í Óðinsvéum og Ilon‘s Wonderland safnsins í Haapsalu í Eistlandi. Eitt meginstef Vatnsdropans er að tengja saman boðskap og gildi skáldverka barnabókahöfundanna Tove Jansson, Astrid Lindgren og H.C. Andersen við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
„Með Vatnsdropaskóginum viljum við kolefnisjafna þau ferðalög sem hljótast af samstarfinu og var fyrstu trjánum plantað nú þegar við tókum á móti fulltrúum frá öllum samstarfslöndunum. Við munum svo kolefnisjafna hverja einustu flugferð vegna samstarfsins og stefnum á fleiri verkefni til að sporna gegn loftlagsvánni“, segir Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi.
Dagana 26.-29. október var fyrsti staðfundur stjórnar Vatnsdropans á Íslandi þar sem fulltrúar allra samstarfsaðilanna komu saman og lögðu drög að næstu skrefum í Vatnsdropaverkefninu, sem verður unnið undir yfirskriftinni Líf á landi.
Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum. Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar. Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.
Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.
Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins