Um 260 nemendur verða í Kóraskóla sem er nýjasti skólinn í Kópavogi

Kóraskóli er heiti á nýjum skóla fyrir til 10.bekk í Kórahverfi í Kópavogi. Skólinn er til húsa i Vallakór og var áður unglingadeild Hörðuvallaskóla.

Nemendur skólans komu með tillögur að nafni á nýja skólann og kusu svo á milli tveggja nafna sem skólaráð valdi úr innsendum tillögum nemenda.

Um 260 nemendur verða í nýjum skóla sem verður stofnaður formlega 1.ágúst og tekur til starfa undir nýju heitir þegar skólaárið 2023 til 2024 hefst.

Tekin var sú ákvörðun í vetur að skipta Hörðuvallaskóla í tvo skóla, annars vegar skóla fyrir 1. til 7. bekk og hins vegar ungl- ingadeild fyrir 8.-10.bekk. Hörðuvalla- skóli verður áfram í núverandi húsnæði að Baugakór
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs sótti skólann heim á dögunum og skoðaði húsakost skólans og hitti fyrir skólastjórnendur. Hluti Vallarkórs 12-14, sem einnig hýsir íþróttahúsið Kórinn, hefur undanfarin ár verið innréttaður fyrir skólastarf og í vetur var lokið við gera kennslustofur á neðri hæð hússins auk þess sem félagsmiðstöð, Kúlan, fékk nýja aðstöðu.

Mynd: Á myndinni eru frá vinstri: Efri röð: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri Hörðuvallaskóla, Nína Ýr Nielsen fráfarandi skólastjóri Hörðuvallaskóla, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs. Neðri röð: Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar, Inga Fjóla Sigurðardóttir deildarstjóri og Arnór Heiðarsson verðandi skólastjóri Kóraskóla.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins