Tvöföld fjölskylduskemmtun á morgun

Laugardaginn 24. september verða tvær fjölskyldustundir í Kópavogi. Í Lindasafni kl. 11:30 er hægt að sækja skapandi Origami smiðju þar sem kennd verða grunnbrot í japönsku pappírsbroti, origami, undir leiðsögn Guðrúnar Helgu Halldórsdóttur formanni íslensk-japanska félagsins á Íslandi. Boðið verður upp á pappír í smiðjunni.

Í Lindasafni kl. 11:30 er hægt að sækja skapandi Origami smiðju þar sem kennd verða grunnbrot í japönsku pappírsbroti, origami, undir leiðsögn Guðrúnar Helgu Halldórsdóttur formanni íslensk-japanska félagsins á Íslandi.

Í Gerðarsafni kl. 13:00 verður svo listsmiðja fyrir fjölskylduna með Rán Flygenring teiknara og Katrínu Gunnarsdóttur danshöfundi. Í smiðjunni verður samspil teikningar og hreyfingar í brennidepli þar sem leikið er með í spuna hvernig ólíkir miðlar, danslist og myndlist, hafa áhrif hvor á annan. Byrjað verður á stuttri sýningu þar sem listakonurnar sýna þátttakendum sitt samstarf. Að sýningu lokinni er unnið með þátttakendum í vinnusmiðju þar sem þau prófa sig áfram með að teikna hreyfingu og hreyfa sig eftir teikningum. Rán og Katrín eru báðar framúrskarandi listamenn á sínum sviðum og hafa báðar hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar