Tónlist og tengslamyndun

Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 10 kynnir Tónagull tónlistarnámskeið fyrir foreldrum ungra barna á foreldramorgni í fjölnotasalnum á 1. hæð aðalsafns. Tónagull hefur haldið námskeið fyrir yngstu börnin frá 2004 og er í stöðugri þróun í takt við nýjustu rannsóknir á sviði tónlistarþroska barna. Tónlist er ein besta leiðin til tengslamyndunar við ung börn og er tónlistariðkun í hóp gefandi fyrir alla þátttakendur á hvaða aldri sem er. Foreldrar, systkini, ömmur og afar eru velkomin með.

Höfundur og stofnandi Tónagulls er Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor í tónlistarfræðum.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.

Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar