Töfratákn

Á laugardaginn, 20. janúar kl. 13 í Gerðarsafni geta gestir komið og ofið saman litríka, litla skúlptúra sem kenndir eru við Ojos de Dios eða „augu guðs.“  Smiðjan hentar börnum og fjölskyldum. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Ojos de Dios eru helgisiðahlutir sem voru upprunalega gerðir af Huichol frumbyggjum Mexíkó. Vefnaðurinn er táknmynd sem tengist fyrst og fremst bænum um gott, langt líf, vernd og til að tryggja góða uppskeru á komandi sumri.  Endar prikanna tákna frumefnin fjögur, jörð, vatn, loft og eld, og áttirnar fjórar, norður, suður, austur og vestur. Miðaugað táknar sjálfa sólina og stendur fyrir kraftinn til að sjá og skilja hluti sem við venjulega getum ekki séð. Að smiðju lokinni er hægt að fara með skúlptúrinn heim og fylla heimilið af nýjum krafti. Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum á laugardögum sem styrktar eru af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins