ÞYKJÓ Í STÚDÍÓ GERÐAR Á HÖNNUNARMARS

Hönnunarmars hefst miðvikudaginn 3.  maí og verður þá opnun á sýningu ÞYKJÓ í Gerðarsafni með fjölbreyttum hönnunarvörum teymisins; frá búningum til húsgagna og upplifunarhönnunar fyrir börn. Verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að hafa sprottið úr samtali og samstarfi hönnuða við líffræðinga, listfræðinga, handverksfólks og hópa leikskóla- og grunnskólabarna á tíma ÞYKJÓ sem staðarlistamanna í menningarhúsunum í Kópavogi.

„Á þeim tíma sem hönnuðir ÞYKJÓ störfuðu sem staðarlistamenn við menningarhúsin varð svo sannarlega til nýr ævintýraheimur, íhugull og vakandi, forvitinn og frjór. Þetta var sérstæður tími sem markaðist af einangrun á heimsvísu en skildi eftir sig heim sem var fullur af tengingum og nærveru. Hópurinn skóp verk sem fæddust úr frjóu ímyndunarafli, yfirburða þekkingu á handverki og virku samtali við sérfræðinga á ólíkum sviðum náttúruvísinda, lista, handverks og síðast en ekki síst sérfræðinga á sviði ímyndunarafls og snjallra lausna – börn,“ segir Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefna- og viðburðastjóri MEKÓ.

ÞYKJÓ er hönnunarteymi sem sérhæfir sig í hönnun fyrir börn og fjölskyldur. Sigríður Sunna Reynisdóttir stofnaði ÞYKJÓ árið 2019 og er starfandi listrænn stjórnandi. Auk hennar eru hönnuðir hópsins Erla Ólafsdóttir arkitekt, Sigurbjörg Stefánsdóttir fatahönnuður og Ninna Þórarinsdóttir barnamenningarhönnuður.

AUGALEIÐ Í GERÐARSAFNI Á HÖNNUNARMARS

Vegna sýningar ÞYKJÓ í Stúdíó Gerðar á HönnunarMars verður sérstök fjölskylduvæn opnun með smiðju í Gerðarsafni laugardaginn 6. maí. Augaleið er skapandi listsmiðja fyrir börn frá 4 ára aldri í fylgd með fullorðnum. Hún verður haldin kl 11-13 og aftur 14-16. Smiðjan opnar augun fyrir því hvernig við sjáum veröldina og gerir okkur kleift að prófa að skoða okkur um með nýjum augum. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins