Það fer í raun allt á annan endann yfir jólahátíðina

Í Hafinu, fiskverslun í Hlíðasmára í Kópavogi er hægt að fá fjölbreytt úrval af gómsætum fiskréttum, fiski og meðlæti sem gleðja bragðlaukana dag hvern, en yfir jólahátíðina fer svo Hafið í sérstakan jólabúning því þá bætast við ýmsar girnilegar kræsingar í tilefni af jólum og áramótum.

Kópavogspósturinn/Garðapósturinn skellti sér í verslun Hafsins og tók Bjarka Gunnarsson verslunarstjóra tali og spurði hann m.a. hvað gerðist í Hafinu yfir jólahátíðina? ,,Það fer í raun allt á annan endann,” segir hann brosandi. ,,Við tökum inn fullt af vörum fyrir jólin, jólasíldin er komin ásamt reyktum og gröfnum lax, piparrótar- og graflaxsósu, og ekki má gleyma humrinum. Svo erum við alltaf með humarsúpuna okkar í sölu og humarinn reyndar líka, en við erum bara með mun meira úrval af humri í desember,” segir Bjarki.

Unnu til gullverðlauna fyrir reykta og grafna laxinn

Og þið eruð með öfluga matreiðslumenn í ykkar liði sem eru stöðugt að að uppfæra og búa til nýja fiskrétti og eru þeir líka með puttana í jólavörunum ykkar? ,,Já, við erum með matreiðslumenn hjá okkur bæði í verslunum okkar og líka í vinnslunni. Það má segja að við séum með valið fólk í hverri stöðu sem er búið að leggja sig allt fram við að hanna og þróa jólavörurnar okkar,” segir Bjarki og bætir við: ,,Árið 2020 tókum við mikið af vörunum okkar í endurskoðun og bættum til dæmis humarsúpuna, reykta og grafna laxinn og jólasíldina okkar. Sama ár tókum við þátt í fagkeppni Kjötiðnaðarmeistara og unnum til gullverðlauna bæði fyrir reykta og grafna laxinn okkar.”

Og eruð þið með eitthvað nýtt í ár, er verið að auka við vöruúrvalið? ,,Við erum sífellt að koma með nýja rétti og betrumbæta eldri réttina. Sumir af þessum réttum stoppa stutt við sem réttir mánaðarins, en aðrir dvelja lengur við hjá okkur,” segir hann.

Jólarétturinn mjög vinsæll

En hvað hefur verið vinsælast hjá ykkur í desember, fyrir jólahátíðina? ,,Í aðdraganda jóla eykst alltaf salan í tilbúnum réttum, meira að gera hjá fólki og það gefur sé minni tíma til að elda og finnst þá gott að geta sótt til okkar tilbúna rétti beint í ofninn ásamt meðlæti,” segir hann og heldur áfram: ,,Og er kemur að jólahátíðinni þá er jólarétturinn okkar mjögvinsæll, en hann er með appelsínum, kanil og rauðkáli og er ansi hátíðarlegur. Þá er alltaf mikil sala í reykta og grafna laxnum og mér sýnist engin breyting ætla að verða þar á. Þá er mikil sala af humarsúpunni og humrinum sem eru vinsælir forréttir um jólin. Núna erum við bara með innfluttan humar þar sem það er algjört veiðibann er á íslenskum humri.”

Og hvernig er hann og er nóg til? ,, Já, við eigum nóg af dönskum humri sem er veiddur í Norðursjó, alveg upp við okkar lögsögu og er ansi líkur íslenska humrinum. Það spillir svo ekki fyrir hvað hann er á góðu verði, einnig erum við með risa Kanadahumar,” segir Bjarki.

Og það er hægt að panta hjá ykkur rétti fyrir jólin? ,,Já, og núna, eins og undanfarin ár, er komið töluvert af pöntunum fyrir jólin af lúxus vörunum okkar eins og fylltum laxarúllum með humri og ferskum aspas, rauðspretturúllum og truflaðri lúðu. Það hefur nefnilega aukist töluvert að fólk er að fá sér fisk á jóladag og öðrum í jólum,” segir hann, en það er opið í Hafinu á Þorláksmessu og fullt af girnilegum fiskréttum í boði þá.

Skatan er komin í hús

Og af því að við vorum að minnast á Þorláksmessu. Hvenær kemur skatan í sölu hjá ykkur og eruð þið með fjölbreytt úrval af henni og skötustöppu? ,,Skatan er mætt í hús. Við erum með þrjár gerðir af skötu, en það sem er vinsælast er kæst og söltuð skata sem er millikæst og höfðar til flestra.”

En hvernig er best að elda skötuna? ,,Best er að láta suðu koma upp á vatninu og setja skötuna út í vatnið þegar það bullsýður, láta svo skötuna malla í ca. 15-20 mín. Ef þið eru með kæsta skötu þá þarf að salta vatnið, en ef þið eru með kæsta og saltaða skötu þá þarf ekki endilega að salta vatnið.”

Unga fólkið að koma sterkara inn í skötuna

Hvernig metið þið stöðu skötunnar og þessarar alda gömlu hefðar, eru landsmenn enn sólgnir í hana? ,,Já, unga fólkið er að koma sterkara inn í skötuna. Ég er samt ekki viss um að allir sem mæta í skötuveislur séu að borða skötu því það er farið að bjóða upp á bæði saltfisk og nætursaltaða ýsu. Mér sýnist að það sé nú kannski sirka helmingurinn sem er að borða skötu og hinir smakka á henni og eru að þreifa sig áfram í þessu. Við erum að bjóða upp á Hnoðmör og hangiflot fyrir þá sem það vilja og er hnoðmörinn ein af þessum aldagömlu vörum sem við verðum að halda í og vera óhrædd að smakka með skötunni.”

Seldu rúmlega 2,000 lítra af Humsarsúpunni

Og fyrir þá sem borða kjöt í aðalrétt á aðfangadagskvöld, er þá fiskurinn ekki málið í forrétt? ,,Jú, það er gott að blanda þessu saman enda er mikið um að fólk sé með humar í forrétt í ýmsum útfærslum. Humarsúpan er svo alltaf mjög vinsæl í forrétt bæði á aðfangadag og gamlársdag og hún er alltaf að sækja á en í fyrra seldum við rúmlega 2,000 lítra hér í Hlíðasmáranum,” segir hann og bætir við: ,, Lúða og annar hvítur fiskur er líka að verða vinsælli sem forréttur, þá sér í lagi sítrus marineraðir í ýmsum útfærslum t.d chevise. Þá er alltaf að auk-ast að fólk sé að setja upp lítið og gómsætt hlaðborð með gröfnum og reyktum lax og öðru góðgæti.”

En hvað er svo Bjarki sjálfur með yfir jólahátíðina? ,,Við erum alltaf með hlaðborð heima hjá okkur í hádeginu á aðfangadag fyrir fjölskylduna, þar sem í boði er mikið úrval af gröfnum og reyktum fiski og kjöti, jólasíld Hafsins er á staðnum, möndlugrautur og fleira. Um kvöldið þá er humarsúpa Hafsins í forrétt með smjörsteiktum humarhölum og svo auðvitað rjúpa í aðalrétt,” segir Bjarki spenntur fyrir komu jólahátíðarinnar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins