Textíll, fatasóun og endurnýting með Ásdísi Jóelsdóttur

Þann 5. október n. k. ætlar Ásdís Jóelsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands að halda erindi á Bókasafni Kópavogs um neyslu, nýtingu og nýsköpun í textíl og tengingu þess við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Mun Ásdís fjalla um tískumarkaðinn, sporin í framleiðslu textílafurða, fatasóun og það sem hefur mótað okkur sem neytendur og hvernig við getum stundað ábyrga og siðræna neyslu. Samkvæmt Ásdísi er í því samhengi „nauðsynlegt að þekkja til flokkun hráefna sem og stærða-, þvotta- og meðferðarmerkinga og hvað þarf að hafa í huga við kaup á textílafurðum“ (2020), eitthvað sem vert er að hafa í huga ef umhverfissjónarmið eru tekin með í myndina. Einnig er skoðað hvernig hægt sé að framlengja líftíma fatnaðar og annarra textílafurða með því að gefa, skipta eða deila, eiga saman, gera við og bæta, breyta og skreyta eða skapa nýtt í þágu umhverfisverndar, meðal annars. Umhverfisvernd er svo sannarlega eitthvað sem er í brennidepli þessa stundina og geta allir gert eitthvað með því að nýta og endurnýta. Ef fólk hefur hug á að kaupa notað til að nýta og endurnýta fatnað og aðrar textílafurðir má benda á nytjamarkaði ýmissa hjálparsamtaka, til dæmis.

Erindi Ásdísar er spennandi og í takt við tímann og verður haldið á 1. hæð aðalsafns klukkan 12.15. Ókeypis er á Menning á miðvikudögum og allir velkomnir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar