Taktu þátt í skógrækt á degi íslenskrar náttúru!

Á Degi íslenskrar náttúru, föstudaginn 16. september nk., gefst bæjarbúum kostur á að taka virkan þátt í útbreiðslu skóga og að binda kolefni í gróðri. Þá verður í þriðja skipti á árinu haldinn útivistar- og fjölskyldudagur í samstarfi Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar, þar sem hvatt er til hreyfingar, samveru og skógar- og náttúruupplifunar. 

Dagskráin hefst kl 17:00 þar sem lagt verður af stað fræðslusetrinu í Guðmundarlundi að Leiðarenda 3 og haldið út á Vatnsendaheiði og hugað að gróðri og sögu. Á heiðinni verður horft til framtíðar og gróðursettar trjáplöntur í þágu aukinna lífsgæða.

Skógrækt er góð leið til að binda CO2 úr andrúmsloftinu til langs tíma en um leið er verið að stuðla að jarðvegsvernd, lífverum í jarðvegi fjölgar, vatnsmiðlun eflist og skógurinn opnar nýja möguleika til útivistar, svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Áðætlað er að gróðursetningu ljúki um kl. 19:00 og verður þá farið til baka í Guðmundarlund.

Að lokinni formlegri dagskrá geta þátttakendur dvalið áfram í Guðmundarlundi og bardúsað við ýmislegt skemmtilegt, enda hefur lundurinn upp á margt að bjóða. Þar er meðal annars 10 brauta frísbígolfvöllur, leiktæki og frábær 9 holu minigolfvöllur. Inni í miðjum Guðmundarlundi er Hermannsgarður, lítill og vinalegur blómagarður með steinbeðum, stígum og bekkjum og svo er það auðvitað skógurinn sjálfur sem býður upp á mikla möguleika til leikja og útivistar.
Fyrir þá sem ætla að taka hring á minigolfvellinum skal bent á að hver og einn verður að taka með sér eigin golfkylfur og -kúlur og það sama á við um frísbígolfvöllinn, fólk verður að koma með sína diska.

Ef fólk ratar ekki í Guðmundarlund er einfaldast að fara inn á https://ja.is/ og slá inn: Leiðarendi 3.
 
Mynd: Frá gróðursetningardegi á Vatnsendaheiði fyrr í sumar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar