Tæknin nýtt í velferðarþjónustu Kópavogsbæjar

Á dögunum undirrituðu Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Ingunn Ingimarsdóttir framkvæmdarstjóri Memaxi efh. áskriftarsamning um notkun Memaxi á heimilum fatlaðs fólks í Kópavogi.

Memaxi er tæknilausn sem einfaldar og leysir margvísleg samskipta-, skráningar- og skipulagsmál í velferðarþjónustu, skjólstæðingum, aðstandendum og starfsfólki til heilla. Lausnin er notuð víða um land í þjónustu við aldraða og fatlaða. Velferðarsvið Kópavogs hóf innleiðingu á þessari tækni á heimili fatlaðs fólks í byrjun árs 2021 og nú hafa þrjú heimili innleitt eða eru að innleiða þessa tækni, fyrir samtals 23 íbúa.

„Innleiðing memaxi er í samræmi við stefnu sviðsins um markvissa nýtingu tæknilausna meðal annars við veitingu einstaklingsbundinnar þjónustu og til að auka öryggi persónuupplýsinga. Velferðarsvið fagnar þessum áfanga við innleiðingu á velferðartækni á heimilum fatlaðs fólks í Kópavogi og fagnar áframhaldandi samstarfi við Memaxi,“ segir Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar.

„Nálgun velferðarsviðs Kópavogsbæjar á innleiðingu Memaxi hefur verið til fyrirmyndar og eftirbreytni. Öflugt og áhugasamt starfsfólk velferðarsviðs hefur fengið tíma og næði til að læra á kerfið og einbeita sér að breyttum verkferlum og yfirfærslu skráninga á pappír yfir í stafrænt form. Upplýsingatæknideild og persónuverndarfulltrúi hafa tekið þátt frá upphafi og þannig stutt dyggilega við innleiðinguna. Kópavogsbær hefur tekið velferðartækni föstum tökum með skýra sýn á framþróun og umbætur. Kópavogsbær er öflugur samstarfsaðili Memaxi og beinir sjónum að þeim mikilvæga virðisauka sem hlýst af notkun Memaxi, auknum gæðum í þjónustunni, öryggi upplýsinga, fjárhagslegum ávinningi og persónumiðaðri þjónustu við íbúa. Hlökkum við hjá Memaxi til áframhaldandi samstarfs og þróunar ásamt því að tengja Memaxi við önnur hugbúnaðarkerfi í rekstri bæjarins,“ segir Ingunn Ingimarsdóttir framkvæmdastjóri Memaxi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins