Svali kynnir nýjar fasteignir á Tenerife og Spáni um helgina

Um helgina mun Novus Habitat halda kynningarfundi þar sem hægt verður að fræðast um allt sem máli skiptir varðandi fasteignakaup á Spáni og Tenerife. Fundirnir verða í klúbbhúsi Golfklúbbs GKG við Vífilsstaði í Garðabæ á milli klukkan 11 og 17 laugardag og sunnudag.

Nýverið gekk Svali Kaldalóns til liðs við Novus Habitat sem er íslensk fasteignasala með starfsstöðvar á Spáni og starfssemi víðsvegar í Evrópu. Eins og margir vita hefur Svali verið búsettur á Tenerife um árabil og þjónustað þar íslenska ferðalanga. Eins og fram kom í fréttum í síðustu viku ferðast um 50.000 Íslendingar til eyjarinnar fögru á hverju ári. ,,Það er mjög gaman að sjá hversu mikið Íslendingar elska Tenerife og fólk kemur hingað aftur og aftur, ár eftir ár, og margir nokkrum sinnum á ári. Það er eitthvað svo heillandi við að heimsækja eyjuna en það er enn meira töfrandi að búa hérna,“ segir Svali sem er búinn að búa á Tenerife núna í hátt í átta ár.

Undanfarin ár hef ég fundið vaxandi áhuga Íslendinga á að kaupa eign á eyjunni og íslenskum fasteignaeigendum á Tenerife fjölgar með hverjum mánuðinum segir Svali

Vaxandi áhugi Íslendinga að kaupa eign á Tenerife

,,Undanfarin ár hef ég fundið vaxandi áhuga Íslendinga á að kaupa eign á eyjunni og íslenskum fasteignaeigendum á Tenerife fjölgar með hverjum mánuðinum. Þetta er mjög ört vaxandi markaður og þar sem ég var farinn að finna fyrir þrýstingi um að vera Íslendingum innan handar hér varðandi fasteignakaup þá fannst mér rétt að stíga það skref til fulls og gekk til liðs við Novus Habitat. Þessa dagana erum við að undrbúa opnun á nýrri söluskrifstofu á Tenerife og ég hlakka til að taka á móti Íslendingum í fasteignaleit.“

Áralöng þjónusta við Íslenska fasteignakaupendur

Fasteignasalan Novus Habitat býður Íslendingum upp á alhliða aðstoð við val og kaup á fasteign ásamt þjónustu eftir kaupin, á íslenskri tungu enda er fjöldi starfsfólks fasteignasölunnar Íslendingar. Aðalskrifstofur Novus Habitat eru í Benijófar, suður af Alicante á Spáni en fasteignasalan sérhæfir sig í nýbyggingum á víðfeðmu svæði við suðausturströnd Spánar og á Tenerife.

Íslendingar hafa í auknum mæli fjárfest í fasteignum við Miðjarðarhafið þar sem njóta má veðurblíðu nánast allan ársins hring. Með fasteignakaupum á Spáni er fólk ekki einungis að fjárfesta í fasteigninni sjálfri heldur einnig lífsgæðum og lífsstíl. Birtan, hlýjan og loftslagið gerir fólki gott og ekki spillir verðlagið og fersk matvaran við Miðjarðarhafið fyrir.

Frumsýning á nýjum íbúðaklasa í Quesada

Á kynningarfundinum um helgina verða með í för fimm spænskir byggingaraðilar að kynna fjölbreytt úrval eigna. Einbýli með einkasundlaug og íbúðir, ýmist á og við golfvelli jafn sem íbúðakjörnum þar sem sundlaugar og garðar eru í sameign. Í flestum tilvikum má finna helstu þjónustu í næsta nágrenni en flestir vilja hafa verslun og veitingastaði í göngufæri á meðan hjá öðrum skiptir það minna máli.

Um helgina verður frumsýning á nýjum eignum sem rísa munu í Ciudad Quesada. ,,Það er gaman að segja frá því að á kynningunni verður í fyrsta sinn kynnt splúnkunýtt verkefni í Quesada í Rojales á Torrevieja svæðinu á Spáni, svæði sem Íslendingar þekkja mjög vel. Þetta verður í fyrsta sinn sem byggingaraðilinn sýnir þetta nýja svæði þannig að íslenskir kaupendur fá fyrstir tækifæri til að skoða þessar stórkostlegu eignir,“ segir Svali og bætir við: ,,Einnig langar mig að segja sérstaklega frá æðislegum fasteignum við frábæran golfvöll í Guia de Isora sveitarfélaginu, sunnan megin á eyjunni. Völlurinn heitir Abama og er 18 holu meistaramótsvöllur hannaður að heimþekktum golfhönnuði, Dave Thomas. Þetta er algert lúxussvæði á suðurströnd Tenerife með Michelin veitingastöðum og annari heimsklassa þjónustu. Þetta er eitthvað sem allir sólardýrkandi golfiðkendur ættu að kynna sér.“

Svali hvetur alla til að koma og spjalla við sig um helgina. Kynningarfundirnir eru öllum opnir og gestir geta kíkt í heimsókn hvenær sem er á milli klukkan 11 og 17, bæði laugardag og sunnudag. Hægt er að bóka einkafund með Svala eða öðrum söluráðgjöfum Novus Habitat með því að hafa samband í gegnum netfangið [email protected]. Einnig er hægt að fá góðar upplýsingar á heimasíðunni novushabitat.com/is/

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins