Sunna Dís Másdóttir hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör 2023

Ljóðstafur Jóns úr Vör var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi laugardaginn 21. Janúar.
Ljóðstafinn hlaut Sunna Dís Másdóttir fyrir ljóðið Á eftir þegar þú ert búin að deyja. Solveig Thoroddsen hlaut önnur verðlaun fyrir ljóðið Lok vinnudags í sláturtíðog þriðju verðlaun hlaut Helga Ferdinandsdóttir fyrir ljóðið Annað líf. 
 
Að auki hlutu sjö ljóð sérstaka viðurkenningu dómnefndar: Hinir dauðu eftir Stefán Snævarr, Í fyrsta sinn sem þú býrð á Íslandi eftir Karólínu Rós Ólafsdóttur, Rabarbarapæ eftir Solveigu Thoroddsen, Skuggsveinn eftir Theódór KR. Þórðarson, Villisveppir í prioyat eftir Sunnu Dís Másdóttur, Vorvindar eftir Pétur Eggerz ogÞú segist ekki vera sterkur og það er satt eftir Sölva Halldórsson.

Verðlaunahafar Ljóðstafs Jóns úr Vör, dómnefnd, Elísabet Sveinsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir

230 ljóð bárust í keppnina

230 ljóð bárust í keppnina að þessu sinni í ár en ljóðin mega ekki hafa birst áður og skulu send inn undir dulnefni höfundar. Dómnefnd skipuðu að þessu sinni Kristín Svava Tómasdóttir (formaður), Anton Helgi Jónsson og Þórdís Helgadóttir.
 
Við sama tilefni voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs sem fyrst var haldin árið 2012 og var dómnefnd sú sama. Þar hlaut fyrstu verðlaun Alexander Aron Karenarson, 9. bekk í Lindaskóla, fyrir ljóðið Krónublöð. Önnur verðlaun hlaut Heiðar Þórðarson, 9. Bekk í Lindaskóla, fyrir ljóðið Eitt tré og í þriðju verðlaun hlaut Þorbjörn Úlfur Viðarsson, 8. bekk í Álfhólsskóla, fyrir ljóðið Óður.
 
Viðurkenningar hlutu Ragnhildur Una Bjarnadóttir, Þórunn Ása Snorradóttir, Freyja Kirstine Jónasdóttir, Heiða Kristín Eiríksdóttir, Ólöf Inga Pálsdóttir, Alexander Aron Karenarson,  Jóhann Emil Óðinsson og Markús Steinn Ásmundsson.
 
Skólakór Kársness flutti nýtt lag eftir Þóru Marteinsdóttur við ljóð Jóns úr Vör en lagið var samið sérstaklega fyrir athöfnina.
 
Um Sunnu Dís Másdóttur
Sunna Dís Másdóttir er sjálfstætt starfandi sem rithöfundur, þýðandi, ritstjóri, gagnrýnandi og leiðbeinandi í ritlist. Hún er ein Svikaskálda og hefur ásamt þeim sent frá sér þrjár ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021. Haustið 2022 kom fyrsta sjálfstæða ljóðabók hennar, Plómur, út hjá Forlaginu.
Sunna hefur kennt fjölda ritlistarnámskeiða og stýrði ásamt Svikaskáldum námslínu í ritlist hjá Endurmenntun Háskóla Íslands haustið 2022. Tvær þýðingar eftir hana komu út á árinu 2022, Inngangur að efnafræði, eftir Bonnie Garmus, hjá Forlaginu og Sjö eiginmenn Evelyn Hugo, eftir Taylor Jenkins Reid, hjá Bókabeitunni, en sú síðarnefnda hlaut Bóksalaverðlaunin í flokki þýddra skáldverka árið 2022.
 
LJÓÐSTAFUR JÓNS ÚR VÖR

Á EFTIR ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ DEYJA
 
Á eftir þegar þú ert búin að deyja ætla ég að taka þig með mér héðan, sveipa um þig 
dimmrauða teppinu sem þú felur þig undir, hylja þig nepalskri jakuxaull og stinga 
tönnunum þínum í vasann. Vatnið drýpur úr svampinum á náttborðinu. Hann er 
tannholdsbleikur á hvítum pinna og þú læsir kjálkunum um hann eins og ungbarn um 
móðurbrjóst þegar hann strýkst við varir þínar. Fyrsta viðbragðið er það síðasta sem 
hverfur. Á eftir þegar þú ert búin að deyja förum við í sirkus og borðum kandíflos sem 
límist í góminn klístrast við tannholdið spunninn sykur á pappírsvafningi, hann leysist 
upp á tungunni eins og tíminn og ég rétti þér tennurnar og sé hendur þínar verða 
fleygar á ný. Sunna Dís Másdóttir
 
Rökstuðningur dómnefndar um sigurljóð Sunnu Dísar Másdóttur
Í einstaklega vel heppnuðu prósaljóði er dregin upp hárfín og áhrifarík mynd af innilegri nánd við aðstæður sem sjaldan eru í sviðsljósinu.
 
Tónninn er sleginn strax í titli ljóðsins. Hann brýtur upp hefðbundið orðfæri og skapar þannig nýtt og óvænt sjónarhorn, nýjan skilning á dauðanum sem höfundur vinnur síðan úr á heillandi hátt.
 
Textinn er barmafullur af áþreifanlegum kærleik og hlýju en þrátt fyrir það laus við alla væmni. Í fáum en ljóslifandi dráttum er teiknað upp viðkvæmt, ljúfsárt augnablik við dánarbeð, þar sem síðustu andartök lífsins kallast á við þau fyrstu. Frjóar og marglaga myndir af tönnum og munni ganga í gegnum ljóðið og skapa sterka jarðtengingu, sem ljær raunveruleikarofinu undir lokin aukinn áhrifamátt.
 
„Á eftir þegar þú ert búin að deyja“ sýnir á undurfallegan, nýstárlegan og eftirminnilegan hátt hvernig ástvinur lifir áfram í lífi, hjörtum og jafnvel líkama eftirlifenda eftir dauðann. Flæðandi taktur ljóðsins og myndmál lokka lesandann til að koma að því aftur og aftur og lesa margsinnis á meðan tíminn „leysist upp á tungunni“, eins og segir í ljóðinu.

Forsíðumynd: Verðlaunahafinn! Sunna Dís ásamt Elísabetu Sveinsdóttur, formanni menningaráðs og Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra í Salnum sl. laugardag

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar