Sumarspírur Menningarhúsanna

Líkt og síðasta sumar bjóða Menningarhúsin í Kópavogi upp á listnámskeið fyrir börn..Þau Anja Ísabella Lövenholdt listfræðingur og meistaranemi í menningarstjórnun við Háskólann Bifröst, Ásthildur Ákadóttir, tónlistarkona og meistaranemi í hljóðfærakennslu við Listaháskólann, Bjartur Örn Bachmann, annars árs nemi á sviðshöfundabraut við Listaháskóla Íslands og Hlökk Þrastardóttir, myndlistarnemi við Listaháskólann eru sumarstarfsmenn Menningarhúsanna í Kópavogi í sumar og munu leiða smiðjurnar.

Smiðjurnar verða tengdar þriggja ára alþjóðlegu verkefni sem ber heitið Vatnsdropinn og er samstarfsverkefni Menningarhúsanna í Kópavogi og þriggja annarra safna á Norðurlöndunum, H. C. Andersen safnsins í Óðinsvéum, Múmínsafnsins í Tampere og Ilon‘s Wonderland safnsins í Hapsaalu í Eistlandi.  Eitt meginstef Vatnsdropans er að tengja saman boðskap og gildi Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun við sígild skáldverk barnabókahöfundanna Tove Jansson, Astrid Lindgren og H. C. Andersen. Í smiðjunum verður leikið með einkenni allra húsa; bókmenntir, náttúru, sögu, tónlist og myndlist, svo allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi
 
Smiðjurnar verða haldnar á tímabilinu 29. júní til 5. ágúst, a lla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá 13 – 15 og er ókeypis á smiðjurnar. Nánari upplýsingar verða á Fb-síðum og vefsíðum Menningarhúsanna.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar