Stöðufundur – Ný sýning opnar í Gerðarsafni

Laugardaginn 2. apríl kl. 15 verður sýningin Stöðufundur opnuð í Gerðarsafni.

Stöðufundur er verkefni sem veitir innsýn inn í hugarheim og væntingar tíu listamanna sem eru í fararbroddi sinnar kynslóðar. Listamennirnir samanstanda af fimm myndlistarmönnum og fimm rithöfundum sem eru ólíkir innbyrðis en eiga það sameiginlegt að hafa í verkum sínum fjallað um samtímann og stöðu ungs fólks í nútímasamfélagi. Stöðufundur er þó hvorki samtímaspegill né sögulegt yfirlit heldur kannski frekar eins og GIF-skrá sem spilast aftur og aftur og aftur til eilífðarnóns.

Sérstaða sýningarinnar liggur fremur í fókus hennar á persónulega upplifun listamannanna á sinni eigin fortíð, nútíð og framtíð og listrænni miðlun þess. Þá veitir samþætting listgreinanna tveggja, myndlistar og ritlistar, einstakt tækifæri til að eiga í samtali á þverfaglegum grundvelli og skapar listrænan skurðpunkt sem sýningin hverfist um.

Samhliða opnuninni verður gefið út bókverk í takmörkuðu upplagi með verkum rithöf-undanna og listamannanna ásamt inngangstextum frá sýningarstjórum. Bókverkið er hannað af grafíska hönnuðinum Helgu Dögg Ólafsdóttur og verður til sölu í Gerðarsafni.

„Neysluhyggja, mörk efniskenndar og líkamleika, yfirvofandi loftslagsvá, eftirsjá, þrá okkar eftir viðurkenningu og tengingu við aðra, auk andlegrar vellíðunar eru ákveðin leiðarstef bókarinnar og sýningarinnar sem fylgir henni heim í hlað.“ – Úr texta Krist-ínu Aðalsteinsdóttur, sýningarstjóra.

Listamennirnir og sýningarstjórarnir eru til taks í viðtal fyrir og eftir opnun.

Daginn eftir opnun, sunnudaginn 3. apríl kl. 14 verða Páll Haukur, Auður Ómarsdóttir og Jakub Stachowiak með leiðsögn um sýninguna í Gerðarsafni.

Myndlistarmenn: Auður Ómarsdóttir, Björk Viggósdóttir, Fritz Hendrik IV, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Páll Haukur.

Rithöfundar: Bergur Ebbi, Fríða Ísberg, Halldór Armand, Jakub Stachowiak, Kristín Eiríksdóttir.

Sýningarstjórar: Kristína Aðalsteinsdóttir og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.

Sýningin er opin til 29. maí

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins