Stjúptengsl og ólíkar fjölskyldur

Valgerður Halldórstóttir heldur erindi um stjúptengsl og ólíkar fjölskyldur á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 28. nóvember kl. 10-11.

Valgerður Halldórsdóttir rekur fyrirtækið stjuptengsl.is og er formaður Félags stjúpfjölskylda. Þá er hún sérfræðingur í málefnum barna hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Hún er með MA í félags-og fjölskylduráðgjöf (MSW), BA í sáttameðferð, kennslu- og uppeldisfræði og stjórnmálafærði. 

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar