Stærsta grunnskóla landsins, Hörðuvallaskóla, skipt í tvo sjálfstæða skóla

Hörðuvallaskóla verður skipt í tvo sjálfstæða skóla frá og með næsta skólaári. Annars vegar skóla fyrir 1.-7.bekk og hins vegar skóla fyrir unglingastigið, 8.-10.bekk. Miðað er við núverandi skiptingu árganga á milli skólabygginga. Yngri nemendur verða áfram í húsnæðinu við Baugakór og mun sá skóli áfram heita Hörðuvallaskóli. Unglingastigið verður áfram í húsnæðinu við Vallakór og mun sá skóli fá nýtt nafn.

Hörðuvallaskóli er stærsti grunnskóli landsins, með um 800 nemendur, og talsvert fjölmennari en þeir skólar sem næstir koma. Fjölgun nemenda er ein af forsendum tillögunnar auk þess sem húsnæði unglingadeildar í Vallakór hefur verið stækkað og betrumbætt.

Stjórnendur Hörðuvallaskóla hafa tekið þátt í samráði og undirbúningi vegna þessara breytinga og á næstu vikum fer fram vinna við nánari útfærslu og skipulag næsta skólaárs miðað við tvo sjálfstæða skóla.

Í þeirri vinnu verður samráð haft við skólaráð og stjórn foreldrafélags Hörðuvallaskóla og foreldrar verða upplýstir reglulega. Jafnframt verður leitast við að skapa nemendum tækifæri til þátttöku í mótun skólans og meðal annars efnt til nafnasamkeppni meðal nemenda um heiti á nýja skólann við Vallarkór.

„Í fámennari skóla fær hver nemandi sterkari rödd og tækifæri aukast til að efla enn frekar nemendalýðræði. Breytingarnar eru því til þess fallnar að skapa enn betri skólabrag,“ segir í tillögu Menntasviðs Kópavogs um skiptingu skólanna.

Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarráði og bæjarstjórn Kópavogs.

Forsíðumynd: Sigvaldi Egill Lárusson er formaður Menntaráðs Kópavogs

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins