Sófaspjall um andleg mál með Sigurlaugu

Sigurlaug Guðmundsdóttir býður okkur í notalegt sófaspjall um andleg mál á Bókasafni Kópavogs mánudaginn 16. september kl. 13-14..

Sigurlaug leiðir spjallið og fer vítt og breitt um hvaðeina sem sem varðar duldu málefnin.

Spurningar sem við veltum upp eru m.a.
-Hvað felst í orkunni?
-Hvaða máli skiptir hvernig við hugsum?
-Hvað er skyggni?
-Hvað eru bænir?
-Hvað er ímyndunaraflið og hvernig getum við notað það okkur til góðs? 
-Hvað og hvar eru huldufólkið og álfarnir? 
-Hvernig sköpum við okkar eigin raunveruleika?

Býður Sigurlaug gestum einnig að koma með eigin spurningar og vangaveltur.

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar