Snjómokstur og sorphirða í Kópavogi

Öll tæki hófu snjómokstur kl. 3.30 sl. þriðjudagsmorgun í Kópavogi. Sorphirða gengur hægar vegna færðarinnar og er aðeins á eftir áætlun. Minnt er á að moka vel frá tunnum svo vel gangi að hirða sorpið.

20 tæki hafa sinnt mokstri á götum og stígum Kópavogs frá aðfaranótt þriðjudags.  Unnið er eftir sipulagi um snjómokstur og byrjað á stofnbrautum, tengibrautum og stígum í forgangi. 

Vinsamlegast sendið ábendingar á ábendingargátt Kópavogsbæjar. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar