Skemmtilega og skapandi fjöltyngda smiðju í Gerðarsafni ‏fyrir börn

Haustfrí grunnskólanna í Kópavogi er framundan og Gerðarsafn býður börnin að taka þátt í fjöltyngdri smiðju sem leiðir saman menningarheima í gegnum japanskt origami í Gerðarsafni á morgun, fimmtudaginn 24. október kl. 13.

Í haustfríinu verður s.s.boðið upp á skemmtilega og skapandi fjöltyngda smiðju í Gerðarsafni ‏þar sem ‏þátttakendur á öllum aldri fá að kynnast origami, japanskri listhefð, ‏þar sem pappír er brotinn í litla skúlptúra. Þátttakendur læra að fylgja einföldum leiðbeiningum og enda svo á að búa til sinn eigin origami óróa.

Smiðjan er opin gestum á öllum aldri, en hvorki er krafist kunnáttu í origami né bakgrunns í listum. Hægt er að koma við á þeim tíma sem hentar hverjum og einum og dvelja eins lengi og hentar. Mælst er til að börn mæti í fylgd með fullorðnum.

Leiðbeinendur eru Yasuka Kawakami frá Japan og íslenska listakonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir. Saman tala ‏‏þær japönsku, íslensku og ensku.

Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Together sem er skipulögð af Menningarhúsunum í Kópavogi í samstarfi við GETU – hjálparsamtök. Markmiðið er að stuðla að gagnkvæmum skilningi menningarheima og að vera samskipta- og sköpunarvettvangur fyrir fólk úr ólíkum áttum.

Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins