Sigrún Þórarinsdóttir nýr sviðsstjóri velferðarsviðs

Sigrún Þórarinsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar. Sigrún hefur starfað sem skrifstofustjóri á skrifstofu ráðgjafar hjá Barnavernd Reykjavíkur frá árinu 2019. Á árunum 2017 til 2019 var hún sérfræðingur í málefnum félagsþjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en sinnti einnig tímabundnum störfum sem félagsráðgjafi hjá Barnavernd Reykjavíkur og leysti af sem félagsmálastjóri hjá Hvalfjarðarsveit árið 2017.
 
Á árunum 2009-2017 var Sigrún sviðsstjóri (félagsmálastjóri) hjá Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar og hafði áður starfað þar sem yfirfélagsráðgjafi 2008-2009.  Hún hefur jafnframt starfað sem félagsráðgjafi í barnavernd hjá félagsþjónustu Hafnarfjarðar á árunum 2007-2008 og sem forstöðumaður á heimili fatlaðs fólks hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness á árunum 2004-2007.
 
Sigrún lauk BA gráðu í félagsráðgjöf auk starfsréttinda frá Háskóla Íslands 2007, þá lauk hún diplómanámi í barnavernd við sama skóla auk diplóma í opinberri stjórnsýslu árið 2016. Hún er nú jafnframt að ljúka MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. 
Sigrún er hún boðin velkomin til starfa hjá Kópavogsbæ.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar