Samningsfjárhæðin er kr. 2.650.000.000 – 64 ný hjúkrunarrými

Verksamningur milli Íslenska ríkisins, Kópavogsbæjar og Ístaks ehf .var tekinn fyrir á fundi bæjarráðs í lok júlí vegna stofnframkvæmdar hjúkrunarheimilis við Boðþing og hefur bæjarráð falið deildarstjóra framkvæmdadeildar að undirrita samninginn f.h. Kópavogsbæjar.

Samningsfjárhæðin er kr. 2.650.000.000 með virðisaukaskatti samkvæmt ákvæðum útboðsgagna. Hlutur Kópa- vogsbæjar er 15% af samningsfjárhæð sbr. 5 mgr. 9 gr. laga um málefni aldraðra.

Byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni liggur fyrir og eru framkvæmdir nú þegar hafnar.

64 ný hjúkrunarrými

Verkið felst í hönnun og byggingu á hjúkrunarheimili á þremur hæðum með 64 nýjum hjúkrunarrýmum, nauðsyn- legum stoðrýmum, sameiginlegum miðlægum rýmum og tæknirýmum samtals 4.330 m².

Verkefnið er alverktaka og nær til fullnaðarhönnunar og byggingu hjúkrunarheimilis með föstum innréttingum skv. alútboðsgögnum og innsendri tillögu alverktaka. Þá skal alverktaki byggja húsið og ganga frá því með föstum innréttingum og frágenginni lóð þannig að allar kröfur yfirvalda og öll ákvæði alútboðsgagna séu uppfyllt.
Gert er ráð fyrir að alverktaki skili verkinu af sér fullbúnu 15. maí 2025.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar