Ruslaland – Upplestur á nýrri barnabók

Ragnhildur Katla Jónsdóttir verður með fyrsta opinbera upplesturinn á bókinni Ruslaland í Bókasafni Kópavogs sem er myndskreytt barnabók með umhverfisvænan boðskap. 

Sögustundin verður á 1. hæð aðalsafns á morgun, fimmtudaginn 6. júli kl. 10 og aftur kl. 17 og er opin öllum söguþyrstum krökkum og hetjum framtíðarinnar.

Barnabókin Ruslaland er gerð til þess að vekja umræður og áhuga barna á umhverfisáhrifum neysluvenja okkar. Sagan gerist í heimi þar sem flokkun og umhverfishugsun er ekki til staðar og því er allt að drukkna í rusli. Getur ein manneskja og lítil planta dugað til að breyta öllu?

Viðburðurinn er í samstarfi við Skapandi sumarstörf í Kópavogi

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins