Rafræn könnun á heilsu, líðan og velferð ungs fólks

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) gera nú rafræna könnun á heilsu, líðan og velferð ungs fólks 16-25 ára og upplifun þeirra á aðgengi að þjónustu í tengslum við forvarnir og geðrækt í sveitarfélaginu sínu. Einnig er spurt um væntingar til fjölbreyttari þjónustu og aðgengi að upplýsingum um framboð þjónustu.

Starfshópur á vegum SSH er að vinna að samræmdum viðmiðum fyrir öll sveitarfélögin um forvarnir og geðrækt ungs fólks 16-25 ára. Lögð er áhersla á að viðmiðin byggi á þörfum og afstöðu ungs fólks til stuðnings og þjónustu þegar kemur að forvörnum og geðrækt. Könnunin er liður í að afla þessara upplýsinga.

Maskína framkvæmir könnunina bæði á íslensku og ensku. Sjá QR-kóða sem vísar á könnunina hér fyrir neðan. Upplýsingar um persónuverndarstefnu Maskínu er að finna á vefsíðu Maskínu.

Í framhaldi af spurningakönnuninni verður ungu fólki á höfuðborgarsvæðinu boðið að taka þátt í vefumræðuborði til þess að dýpka svör sem berast í könnuninni.

Vonast er til að ungmenni í Kópavogi gefi sér tíma til að svara könnuninni en áætlað er að það taki um 5 til 10 mínútur.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins