Pönkganga með dr. Gunna 11. september

Í kringum árið 1980 varð Kópavogur vagga pönksins og Félagsheimilið í Kópavogi helsti vettvangur þess. Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, tók virkan þátt í tónlistarsenunni í Kópavogi og leiðir hér rómaða göngu um söguslóðir pönksins. Gangan hefst við Bókasafn Kópavogs miðvikudaginn 11. september kl. 17. Öll hjartanlega velkomin og aðgangur ókeypis.

Dr. Gunni (Gunnar Lárus Hjálmarsson) er fæddur í Kópavogi árið 1965 og byrjaði snemma að gutla í tónlist eftir að hann gerðist Bítlaaðdándi um miðjan 8. áratuginn. Ákveðin kúvending varð þegar hann heyrði í Fræbbblunum í Kópavogsbíói 1979. Hann kom fyrst fram með hljómsveit (Dordinglar) á sama stað 1980. Síðan þá hefur hann komið víða við, spilað, sungið, samið og fjallað um tónlist.

Menning á miðvikudögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins