Orri Þór dúx MK með hreina 10 í meðaleinkunn

Sögulegt met var sett í útskriftarathöfn Menntaskólans í Kópavogi í lok maí þar sem Dúx skólans í bóknámi fékk hreina 10.

Það var Orri Þór Eggertsson sem gerði þetta svo glæsilega, en hann er nemandi á raun- greinabraut og á Afreksíþróttasviði skólans.

Dúx MK. Orri Þór Eggertsson ásamt forseta bæjarstjórnar, Sigrúnu Huldu Jónsdóttur

Jafnframt var semidúx skólans með þriðju hæstu einkunn í sögu skólans með einkunina 9,87. Tera Rún Júlíúsdóttir nýsveinn í framreiðslu varð hæst nemenda verknáms með einkunn 9,13. Tera Rún sat 2. og 3. bekk samhliða á vorönn og er því árangur hennar sérklega eftirtektarverður.

Skólameistari fór yfir sögu skólans á 50 ára afmælisári Menntaskólans í Kópavogi en vék jafnfram að auknum vinsældum skólans, sterku félagslífi og vönduðu námsframboði.

Sérstaklega vék skólameistari að glæsilegum árangri nemenda í verknámi á erlendum vettvangi en þar hafa nemendur skólans verið að skara fram úr á heims vísu.

Skólameistari fór með ræðu Ingólfs A. Þorkelssonar sem hann flutti fyrsta útskriftarárgangi skólans árið 1977 en færði orðalag örlítið til nútímans. Orð Ingólfs eiga jafnvel vel við í dag eins og þegar þau voru mælt fyrir 46 árum.

Þar sagði Ingólfur:
„Og mikil stórvirki hafa verið unnin á sviðum tækni og vísinda, ekki vantar það. En þrátt fyrir alla framvindu erum við fjær því en nokkru sinni að sjá öllum svöngum jarðarbörnum fyrir mat og sjálf vísindin hafa sýnt fram á það með óyggjandi rökum að heimurinn okkar, heimur tækni og vísinda er heimur á heljarþröm. Heimur sem fær ekki staðist nema mannkynið geri sér ljóst að gæði jarðarinnar eru ekki óþrotleg og að varnarbarátta framtíðar- innar verður að snúast um varðveislu lífvænlegs umhverfis og réttlæti, en ekki um taumlausan ágóða og aukinn hagvöxt einni þjóð til handa á meðan önnur líður skort.“

„Baráttan fyrir betri heimi verður bæði löng og tvísýn. Í þeirri baráttu er þörf djarfra viðsýnna og drengilegra liðsmanna. Í þeirri baráttu er þörf fyrir ykkur. Hafi seta ykkar í Menntaskólanum í Kópavogi hjálpað til að gera ykkur hæf til þeirrar baráttu hefur ekki verið stritað til einskis.“

Forsíðumynd: Hér má sjá forseta bæjarstjórnar Kópavogs, Sigrúnu Huldu Jónsdóttur með glæsilegum hópi verðlaunahafa sem hlutu peningaverðlaun úr viðurkenningarsjóði MK. Orri Þór Eggertsson náði þeim sögulega árangri að vera með hæstu meðaleinkunn í bóknámi hvorki meira né minna en 10. F.v. Sigrún, Orri Þór, Birna Kristín Björnsdóttir, Lovísa Rakel Gunnarsdóttir, Ólafur Þór Ólason, Wajid Ali og Tera Rún Jórunn Júlíusdóttir. Wajid Ali , Ólafur Þór og Lovísa Rakel hlutu sérstakar viðurkenningar fyrir eftirtektarverðan árangur á námsferli sínum.

Rótarýklúbburinn Borgir veitir viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sérgreinum verknáms á lokaprófi. Hana hlaut Matthías Jóhannesson bakari. Emma Eyþórsdóttir afhendir verðlaunin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar