Opið hús um skipulag á vestanverðu Kársnesi

Opið hús vegna forkynningar á rammahluta aðalskipulags á vestanverðu Kársnesinu verður í Safnaðarheimili Kársnessóknar Hábraut 1A, á eftirfarandi dögum:

  • Fimmtudaginn 6. febrúar. Opið hús milli kl. 16 og 19.
  • Laugardaginn 8. febrúar. Opið hús milli kl. 13 og 16.
  • Mánudaginn 10. febrúar Opið hús milli kl. 16 og 19.

Þar geta íbúar og aðrir hagsmunaaðilar komið og kynnt sér vinnslutillögu ásamt fylgigögnum. Starfsmenn og ráðgjafar verða á staðnum til að svara spurningum.

Viðfangsefni rammahlutans snýr einkum að áframhaldandi þróun svæðisins með sérstakri áherslu á gæði byggðar, góðar samgöngutengingar meðal annars fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og almenningsrými. Sett er fram heildarsýn fyrir framtíðarþróun svæðisins, sem verður útfærð nánar í deiliskipulagsáætlunum fyrir tiltekna reiti á svæðinu.

Sérstaklega er vakin er athygli á að staðsetning hefur verið breytt frá fyrri auglýsingu.

Mynd (Alta): Úr vinnslutillögunni.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins