Óku 175 km til að mynda allar 320 götur Kópavogs

Myndir úr Kópavogi á kortavefnum Google map hafa allar verið endurnýjaðar.
Fyrri myndir voru teknar árið 2013 og ýmislegt breyst í bænum á þessum tíma, þannig að nú sjá notendur réttari götusýn en áður. Þar munar miklu í nýjum hverfum eins og á Kársnesi og víðar.
Um er að ræða 365 gráðu myndir, teknar á 3 til 5 metra fresti, í háskerpu.

Alls þurfti að aka 175 km um bæinn til að ná myndum í öllum 320 götum bæjarins.
Verkið var unnið af fyrirtækinu Sýndarferð fyrir Kópavogsbæ.

Mynd: Naustavörin í Kópavogi eins og hún birtist á Google map

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar