Ofurgreindir spéfuglar

Hinir ofurgreindu spéfuglar hafa skemmt þjóðinni um áraraðir á ljósvakamiðlunum og má segja að þeir hafi slegið alveg nýjan tón þegar þeir birtust landsmönnum í fyrsta sinn. Tvíhöfði er menningarfyrirbæri sem allir hafa skoðun á og nú heimsækja þeir Jón Ólafsson í fyrsta sinn í Salinn á morgun, fimmtudaginn 28. september kl. 20:30.

Áherslan verður lögð á tónlist þeirra Jóns & Sigurjóns en í gegnum tíðina hafa þeir bæði samið og flutt tónlist sem margir halda upp á. Helgi, persónulegi trúbadorinn, gæti komið við sögu og jafnvel Adolf Hitler.  Það er allt brjálað í bænum og allir stuði í!

Jón Ólafs snýr aftur með spjalltónleikaröðina sína, Af fingrum fram. Röðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum landsins en Jón hefur á síðastliðnum fimmtán árum fengið til sín yfir 50 listamenn og hafa fleiri en 30.000 áhorfendur hrifist og hlegið með á þessum einstöku kvöldum Í Salnum. Miðaverð er 6.500 kr.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar