Næsta sumarganga á morgun um Guðmundarlund og nágrenni

Þrjár sumargöngur verða í Kópavogi í júní og fór sú fyrsta fram miðvikudaginn 5.júní þegar gengið var í kringum Elliðavatn. Fjölmennt var í göngunni sem var í leiðsögn Einars Skúlasonar göngugarps.

Næsta sumarganga verður miðvikuvikudaginn 12. júní og hefst kl. 17.00. Þá verður gengið um Guðmundarlund, Grunnuvötn og Sandahlíð. Mæting er við bílastæði við Guðmundarlund. Vegalengd ca 5 km og 100 m/hækkun. Gangan tekur tæpa tvo tíma. Aðgangseyrir er enginn og öll velkomin.

Nánar: Gengið er eftir slóðum og stígum frá Guðmundarlundi meðfram Arnarbæli og svo meðfram Grunnuvötnum og upp á Sandahlíð og aftur í Guðmundarlund. Spjallað verður um útsýnið og bent á fjöll sem sjást, örnefni og fleira. Stígar eru flestir góðir en þó óslétt á kafla og gott að vera með stafi.

Loks verður Selfjallshringur um Lækjarbotna genginn 26.júní.

Sumargöngur eru hluti Sumri í Kópavogi, fjölbreyttum viðburðum um allan Kópavog.

Mynd: Gengið við Elliðavatn sl. miðvikudag

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins