Munum leiðina

Fjólublár bekkur hefur verið settur niður á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina. Fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma.

Settir hafa verið niður fjólubláir bekkir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu:

Kópavogsbær – bekkur staðsettur á Kársnesi

Seltjarnarnes –bekkur staðsettur við Gróttu Reykjavíkurborg – bekkir við Reykjavíkurflugvöll og við göngubrúnna innst í Fossvogi

Garðabær – bekkur við Sjáland

Hafnarfjörður – bekkur gömlu sundlaugina í Hafnarfirði.

Allir bekkirnir eiga þeir það sameiginlegt að standa við sjávarsíðuna með fallegu útsýni en saman mynda þeir einnig skemmtilega leið í gegnum öll þessi sveitarfélög.

Dagur heilabilunar

í gær, 21. september var alþjóðlegur dagur heilabilunar og er þetta liður í vitundarvakningu Alzheimersamtakanna á Íslandi um málaflokkinn sem ber yfirskriftina Munum leiðina. Á bekkjunum er QR kóði sem hægt er að skanna og styrkja um leið samtökin. Hvetjum fólk til að taka fallegar og skemmtilegar myndir af sér á þessum fallegum bekkjum eða bara að setjast niður og njóta útsýnisins.

Mynd: Bekkur staðsettur á Kársnesi í Kópavogi

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar