Mozart við kertaljós í Kópavogskirkju

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin og verða tónleikarnir í Kópavogskirkju föstudaginn 20. desember kl. 21.00.

Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og tvö ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og gestur er Sigríður Hjördís Indriðadóttir flautuleikari. Á dagskránni eru tvö glæsileg kammerverk eftir Mozart en það eru Kvintett fyrir klarinettu og strengi í A Dúr kv 581 og Kvartett fyrir flautu og strengi í D Dúr kv 285.

Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

Tónleikarnir verða í Kópavogskirkju föstudagskvöldið 20. desember. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir klukkan 21.00 og er einungis lýst með kertaljósum. Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 3000 fyrir nemendur, öryrkja og eldri borgara og frítt inn fyrir börn. 

Miðasala við innganginn og á Tix.is.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins