MIMRA með útgáfu- og upptökutónleika í Salnum

Tónlistarkonan MIMRA er í þann mund að gefa út plötu, en þann 1. apríl kemur út stuttskífan Finding Place. MIMRA fylgir plötunni úr hlaði með útgáfu- og upptökutónleikum í Salnum í Kópavogi ásamt hljómsveit sama kvöld. Miða má nálgast á tix.is undir ,,MIMRA í Salnum“.

MIMRA er listamannsnafn söngkonunnar og lagahöfundarins Maríu Magnúsdóttur. MIMRA steig fram í sviðsljósið með fyrstu plötu sína, Sinking Island, árið 2017 og er Finding Place því önnur plata hennar. Stíll tónlistar MIMRU fellur undir alternative folk pop, hljóðheimurinn er oft á tíðum djúpur og stórbrotinn og daðrar við kvikmyndatónlist í stílbrigðum. 

Finding place er EP plata sem kemur út stafrænt, og í takmörkuðu upplagi á vínyl

Finding place er EP plata sem kemur út stafrænt, og í takmörkuðu upplagi á vínyl. Hún inniheldur sex lög sem flæða hvert inn í annað og rennur platan því í gegn án þess að stoppa og myndar þannig heildrænt listaverk. Upptökur á plötunni fóru fram í fyrra í Stúdíó Bambus þar sem María og Stefán Örn Gunnlaugsson sáu um upptökustjórn og sköpun hljóðheims ásamt einvala liði hljóðfæraleikara. Að plötunni komu María, Stefán Örn, Magnús Trygvason Elíassen sem sá um trommur og slagverk, Sylvía Hlynsdóttir sem gerði brass útsetningar og spilaði á trompet og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir sem spilar á básúnu. Um hljómjöfnun sá Skonrokk Studios. Ljósmyndir og myndefni er eftir Önnu Maggý.

,,Textar hvers lag eiga sér sína sögu, No man’s land, Finding place og Out of the dark fjalla um að fóta sig í lífinu þegar það breytist, að finna sér stað og máta sig upp á nýtt. Flest lögin túlka ákveðið rótleysi. Sister samdi ég eftir fyrstu bylgju me too byltingarinnar, en frásagnir þolenda snertu mig djúpt. Lagið er ákall á að þolendum sé trúað og að fólk loki ekki augunum fyrir erfiðri reynslu annarra þegar hún kemur loksins upp á yfirborðið. Easy to choose er mér kært og sérstakt að því leiti að það var samið sem óvænt brúðargjöf til vinkonu.“

Tónleikarnir fara fram í Salnum í Kópavogi þann 1. apríl. Þeir hefjast kl 20.30 og húsið opnar klukkustund fyrr. Tónleikarnir hlutu sérstakan styrk frá Lista- og menningarsjóð Kópavogsbæjar, og er María stoltur nýr Kópavogsbúi. Menningarsjóður FÍH og Tónlistarsjóður Rannís eru einnig styrktaraðilar. Hljómsveitina skipa María Magnúsdóttir, Stefán Örn Gunnlaugsson á hljómborð og hljóðgervla, Sólrún Mjöll Kartansdóttir á trommur og slagverk, Sam Pegg á bassa, Helga Ragnarsdóttir á píanó og gítar og Sylvía Hlynsdóttir og Elvar Bragi Kristjónsson á trompet. 

Hlusta má á tónlist MIMRU á www.mimramusic.com og á streymiveitum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar