Menningarveturinn hafinn

Menningarveturinn í Kópavogi 2021 hófst með pompi og prakt síðustu helgi með Hamraborg Festival og teygði hátíðin anga sína um alla Hamraborgina en hátíðin er haldin að frumkvæði sýningarýmisins Midpunkt í Hamraborginni með stuðningi lista- og menningarráðs Kópavogs.

Tilgangur menningarstarfs í Kópavogi er að auka lífsgæði bæjarbúa á öllum aldri með fjölbreyttu menningar- og listalífi, fræðslu og miðlun með áherslu á upplifun sem ekki er að finna annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

„Við viljum að menningarstarfið nái til allra Kópavogsbúa og er nú verið að leggja smiðshöggið á nýtt og ferskt útlit menningarmála í Kópavogi undir heitinu MEKÓ, sem er skammstöfun fyrir Menning í Kópavogi,” segir Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi. „Megin hugmyndafræðin að baki MEKÓ er að fanga menningarlíf bæjarins í öllum hverfum þess í stað þess að binda það einungis við hinar einstöku menningarstofnanir sem nú þegar standa styrkum stoðum með metnaðarfulla dagskrá allan ársins hring.”

MEKÓ tímarit og MEKÓ.is

Íris María Stefánsdóttir markaðs- og kynningarstjóri menningarmála í Kópavogi segir að tilkoma MEKÓ feli ekki bara í sér nafna- og útlitsbreytingar. „Nú í september munu allir Kópavogsbúar fá MEKÓ tímaritið inn um lúguna hjá sér. Þetta er annað árið sem við gefum út menningartímarit og mun blaðið í ár fanga hið öfluga menningarlíf sem fyrirfinnst víðs vegar í Kópavogi.”

„Við erum einnig komin vel á veg við gerð nýrrar heimasíðu menningarmálaflokksins, meko.is, þar sem fjallað verður um allt menningarstarf í Kópavogi í máli og myndum. Við munum þar auglýsa sýningar og viðburði menningarhúsanna sem og þeirra sem hafa verið styrktir af lista- og menningarráði Kópavogs. Með þessu viljum við efla menningarlífi Kópavogs enn meir,“ segir Íris María.

Fastir liðir tvíeflast

Menning á miðvikudögum og Fjölskyldustundir á laugardögum hafa fyrir löngu fest sig í sessi í menningarstarfi Kópavogsbæjar og í ár verður engin breyting þar á. „Þessir viðburðir eru alltaf ókeypis og munu fara fram sitt á hvað í Gerðasafni, Salnum, Náttúrufræðistofu og Bókasafni Kópavogs. Við vonumst til að geta boðið upp á þessa viðburði á öðrum stöðum í Kópavogi þegar líður á veturinn,“ segir Soffía.

Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefna- og viðburðastjóri menningarmála hefur leitt hóp öflugra og skapandi starfsmanna í menningarmálum Kópavogs í mótun metnaðarfullrar dagskrár sem allir eiga kost á að njóta á komandi mánuðum.

Menning á miðvikudögum hefur göngu sína 1. september og þá í samstarfi við sviðslistahátíðina Plöntutíð en hátíðin fer fram víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, og þar á meðal í Kópavogi, fyrstu dagana í september.

„Það er svo hressandi að brjóta upp vikuna og kíkja á þá fjölbreyttu viðburði sem eru í boði í hádeginu á miðvikudögum. Hljóðgöngur og aldagamlar handverkshefðir, áhugaverð erindi um náttúruvísindi og listir, hugvekjandi tónleikar og samræður um sköpunarkraftinn er á meðal þess sem verður á boðstólum í viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum“ segir Elísabet Indra en listamenn, handverksfólk og vísindamenn í fremstu röð leiða viðburðina.

Fjölskyldustundir hefjast aftur 4. september með plöntuleikhússmiðju á Náttúrufræðistofu Kópavogs. „Margar fjölskyldur sem hafa vanið komu sína til okkar á laugardögum og því miður hefur dagskráin verið heldur gloppótt sökum Covid-19 síðustu misseri. En við ætlum heldur betur að bæta úr því núna þegar við sjáum fram á bjartari tíma,“ segir Elísabet Indra og vonar að fólk verði ánægt með þær ýmsu nýjungar sem verði á boðstólnum í vetur.

„Við munum leggja áherslu á að bjóða upp á fjölbreyttar smiðjur þar sem allir fjölskyldumeðlimirnir geta fengið að njóta sín og verða smiðjurnar haldnar á víxl í Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Bókasafni Kópavogs og Lindasafni. Plöntuleikhús, fjölbreyttar ritsmiðjur, tónlistarsmiðjur, grímugerð og skuggabrúðusmiðjur er á meðal þess sem fjölskyldur í Kópavogi geta spreytt sig á að gera í Fjölskyldustundum sem fram fara alla laugardaga kl. 13 – 15.“

Foreldramorgnar á Bókasafninu

„Eilítil breyting verður á viðburðaröðinni Foreldramorgnar á fimmtudögum í vetur en undanfarin ár hafa foreldramorgnarnir verið annan hvern fimmtudag og flakkað á milli Menningarhúsanna,“ segir Elísabet Indra. „Frá og með fimmtudeginum 2. september munu foreldramorgnar hins vegar vera alla fimmtudaga í Bókasafni Kópavogs og hefur starfsfólk bókasafnsins sett saman frábæra dagskrá fyrir nýbakaða foreldra.“

Annan hvern fimmtudag verður svo boðið upp á fróðlega og skemmtilega fræðslufyrirlestra fyrir nýbakaða foreldra. Í haust verður boðið upp á fyrirlestra um skyndihjálp, matarræði yngstu barnanna, samskipti kynjanna eftir barnsburð, svefnvandamál barna, RIE uppeldisaðferðina og núvitund.

Höldum okkar striki

Það er margt á döfinni á komandi mánuðum og eru þær Soffía, Íris og Indra mjög jákvæðar gagnvart haustinu. „Við hugsum fram á við og hlökkum til að upplifa blómstrandi menningarlíf í Kópavogi. Við sjáum fram á að geta boðið Kópavogsbúum upp á glæsilega aðventuhátíð, vetrarhátíð og barnamenningarhátíð þar sem við vonumst til að geta boðið enn fleirum að taka þátt í sýningarhaldi og sjónarspili”, segja þær að lokum.

Mynd: Menning í Kópavogi! F.v. Íris, Soffía og Indra segja margt á döfinni hvað menningarmálin varðar á komandi mánuðum í Kópavogi

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar