Menningargjöf til íbúa Kópavogs í tilefni afmælis

Í tilefni 70 ára afmælis Kópavogsbæjar fá allir íbúar, 18 ára og eldri, menningargjöf að andvirði 3.000 krónur. Gjöfina má nýta til þess að fá árskort í Gerðarsafni eða upp í greiðslu á miða á tónleika í tónleikaröðinni Tíbrá sem fram fer í Salnum.

„Okkur langaði til þess að gefa Kópavogsbúum gjöf sem hvetur þá enn frekar til að heimsækja okkar frábæru menningarhús sem eru vettvangur menningarviðburða af ýmsum toga allt árið um kring,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Nánar um menningargjöfina:

Árskort í Gerðarsafn:

Árskortið er hægt að innleysa á árinu 2025 og gildir það frá útgáfudegi. Ganga þarf frá afhendingu árskortsins í afgreiðslu Gerðarsafns á opnunartíma safnsins alla daga frá kl. 12 til 18.00.

Tíbrár-tónleikar í Salnum:

Gjöfina er hægt að innleysa í Salnum til ársloka 2026 með því að senda kennitölu í tölvupósti á [email protected] og óska eftir gjafakorti að andvirði 3000 kr. sem gildir á alla tónleika í Tíbrá tónleikaröð.

Kópavogsbær hlaut kaupstaðaréttindi árið 1955. Haldið er upp á 70 ára afmælið með ýmsum viðburðum á árinu 2025.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins