Menning á miðvikudögum | Jólabókaflóðið

Árni Matthíasson leiðir samtal um jólabókaflóðið 2022 í hádegiserindi á Bókasafni Kópavogs.
Rýnt verður í strauma og stefnur, nýjabrum og mögulega hápunkta. Erindið hefst kl. 12.15 og verður haldið í fjölnotasalnum á 1. hæð aðalsafns. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.

Árni Matthíasson hefur starfað sem blaðamaður um áratugaskeið. Hann er ástríðufullur bókmenntaunnandi auk þess að vera einn atorkusamasti tónlistarskríbent landsins.

Menning á miðvikudögum er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar