Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara … spennandi!

Sævar Helgi verður gestur á Bókasafni Kópavogs í haustfríinu og mun hann kynna nýjustu bók sína Kúkur, piss og prump og lesa upp úr henni fyrir krakkana á morgun, fimmtudaginn 24. október kl. 13.

Kúkur, piss og prump er léttlestrarbók úr hinum vinsæla Vísindalæsisflokki Sævars Helga Bragasonar. Hér úir og grúir af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Elías Rúni teiknar myndirnar í bókinni en hann hefur einstakt lag á að setja flókna hluti fram á skýran og skemmtilegan hátt. 

Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Meltingin þín leikur nefnilega algjört lykilhlutverk þar. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara … spennandi! Það sem mestu máli skiptir er að vera forvitin og þora að spyrja spurninga.

Öll velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins